Tíminn líður hratt og það er allt of mikið að gera. Því hef ég ekki getað gefið mér eins mikinn tíma og ég vil í að gera það sem mér finnst hvað skemmtilegast: blogga.
En það er nú minna en mánuður þangað til þessu lýkur öllu saman og ég get gert nákvæmlega það sem mér sýnist.
Það er því lítið annað í stöðunni en að grafa nefið í bækurnar og vinna sig í gegnum lokasprettinn.
Það sem hjálpar mér mikið í gegnum stress er tónlist og ég er yfirleitt með tónlist í eyrunum meira eða minna allan daginn hvort sem það er á leiðinni í eða úr skólanum eða þegar ég er að læra.
Ég nota nánast einungis Spotify til þess að hlusta á tónlist, Það sem ég elska við Spotify er að það er svo auðvelt að uppgötva nýja, skemmtilega tónlist.
Walk the moon er hljómsveit sem ég var að uppgötva í dag. Tónlistin þeirra er mjög hress og skemmtileg. Tónlist sem gleður.
Lagið þeirra Work this body hefur verið á stöðugri endurspilun hjá mér í dag og ég er ekki frá því að það sé strax orðið uppáhalds.
Endilega tékkið á þessari skemmtilegu hljómsveit.
Þangað til næst
X
-A
No comments:
Post a Comment