Þar sem þetta blogg á að fjalla um ástina fyrst og fremst fannst mér tilvalið að deila þessu með ykkur. Hér fyrir neðan eru 3 af mínum uppáhaldsauglýsingum úr auglýsingarherferð sem vefsíðan Expedia gerði fyrir svolitlu síðan. Auglýsingaherferðin hefur yfirskriftina Find yours, eða finndu þitt. Sett var að stað samkeppni þar sem þáttakendur gátu sent inn myndbönd sem hefðu sömu yfirskrift. Vinningsmyndböndum fengu svo að vera hluti af auglýsingaherferðinni. Ég hef séð öll myndböndin og þykir þau virkilega falleg. Ástin er í aðalhlutverki, í hinum ýmsu birtingamyndum og sögurnar grípandi. Virkilega til þess að hlýja manni um hjartarætur á þessum fallega degi.
Þetta myndband heitir Find your goodbye og þar í aðalhlutverki er bræðrakærleikur og missir
Find your strength segir sögu ungrar konu sem átti við alvarleg veikindi í æsku og styrkinn og ástina sem hún fann í vini sínum.
Find yours: Home is wherever I´m with you Virkilega krúttlegt og svolítið kómískt myndband þar sem tveir mismunandi menningarheimar mætast.
Ástin er alls staðar og birtist okkur í mörgum mismunandi myndum.
Eftir að hafa verið á lausu í Reykjavík í rúm tvö ár hef ég rekið mig á ýmsar mis skemmtilegar týpur af karlmönnum. Það virðist því miður vera af nógu að taka í okkar annars fögru borg, en þessar týpur eiga það allar sameiginlegt að vera líklegar til þess að hafa neikvæð áhrif á þig og líf þitt. Hafðu varann á.
Vinnualkinn
Hann velur vinnuna fram yfir þig og er alltaf upptekinn. Þessi týpa mun líklega hafa áhrif á sjálfsöryggi þitt ef þú ert í návist hans til langs tíma. Hann kann ekki að meta þig, eða er mjög lélegur í að sýna það. Ef hann hefur ekki tíma fyrir þig, hefur þú ekki tíma fyrir hann. Einfalt.
Lati gaurinn
Líklegt er að hann hafi engar, eða litlar framtíðarhorfur. Hann hefur ekki mikið af markmiðum, ef hann hefur þau er hann ekki að gera mikið til þess að uppfylla þau og ekki er líklegt að það muni breytast í nánustu framtíð.Hann hefur sína drauma (eins og allir) en hefur ekki hugrekki né nennu til þess að láta þá rætast. Það vantar allan drifkraft í þennan mann. Framtíðin hræðir hann eða þá að hann nennir ekki að pæla í henni. Ef þið eruð ekki nokkurn veginn samstíga í sambandi við metnað og framtíðarsýn býður það ekki upp á heilbrigt samband til langs tíma. Mömmudrengurinn
Hann elskar móður sína umfram alla aðra og hún hefur sterk ítök í lífi hans. Það getur verið gæðamerki að karlmaður hafi gott samband við móður sína, en ef hún hefur svo mikil völd í lífi hans að það komi niður á ykkar sambandi er það ekki gott.
Hann hlustar og hlýðir móður sinni í einu og öllu, þrátt fyrir það að vera fullorðinn karlmaður. Þú munt líklega aldrei komast með tærnar þar sem móðir hans hefur hælana. Einnig getur verið að hann muni ætlast til þess að þú hugsir um hann eins og móðir hans gerir. Þú vilt deita hann, ekki ala hann upp. Þetta mun vera flókið samband og það er undir þér komið að ákveða hvort það komi til með að vera þess virði.
Fullkomnunarsinninn
Sá sem er með allt lífið skipulagt niður í minnstu smáatriði. Hann er líklega með 5 ára plan, jafnvel 10 ára plan. Allt þarf að vera fullkomið, þar með talið þú og hann er með ákveðin plön um hvaða stefnu ykkar samband skal taka. Hann á það til að vera svo upptekinn að plana að hann gleynir að lifa og vera til staðar í núinu. Hann á líklega erfitt með að takast á við breytingar og ef þið eruð mjög ólík að persónugerð mun það líklega valda vandamálum í sambandinu.
Sá sem setur þig á stall Líkist að nokkru leyti fullkomnunarsinnanum. Hann hefur ákveðnar hugmyndir um þig, hver og hvernig þú ert. Líklegt er að hann sé meira spenntur fyrir ímyndinni af þér sem hann er búinn að byggja upp í hausnum á sér heldur en þér sjálfri. Þegar fullkomna ímyndin hans af þér stenst ekki raunveruleikann er líklegt að þið munið bæði enda í sárum.
Brotni gaurinn/ tilfinningaflækju gaurinn
Sá sem er "með hausinn í messi" , " ekki tilbúinn að díla við þetta" (eða ein af öllum hinum endalausu afsökunum sem fyrirfinnast). Í stuttu máli maðurinn sem er ekki viss um tilfinningar sínar í þinn garð og mun líklega aldrei vera það. Ástarsamband með þessari týpu mun líklega þýða endalaus vonbrigði og hjartasár. Samband með honum mun vera mjög óstöðugt og leiðir ekki til neins. Sparaðu þér tilfinningarússíbanann og gerðu sjálfri þér greiða: Láttu þennan eiga sig.
"Góði gaurinn" Ef karlmaður þarf að lýsa því yfir að hann sé góður og eyðir miklum tíma í að segja þér frá því hversu frábær hann er, þá er hann líklega ekki góði gaurinn. Karlmaður sem í raun og veru er góði gaurinn þarf ekki að lýsa því yfir að hann sé góður gaur. Hann sýnir það í verki.
Sá sem vill bara kærustu
Ætti að vera nokkuð gleðiefni að hafa loksins hitt á karlmann sem er tilbúin í samband ekki satt? Rangt. Þessi týpa vill ekki vera með þér vegna þess hversu yndisleg, góð, gáfuð og falleg þú ert. Þessi einstaklingur er líklega farinn að nálgast þrítugsaldurinn og farinn að finna fyrir pressu frá fjölskyldu, samfélaginu og sínu nærumhverfi um að finna sér einhverja til þess að vera með.
Því skiptir hann mestu máli að finna sér samband, ekki manneskjan sem hann er í sambandi með. Þetta samband er ekki líklegt til að verða langlíft og mun ekki hafa góð áhrif á þig.
Ég hef verið aðdáandi Sex and City þáttanna eins lengi og ég man eftir. Ég hef nánast horft á alla þættina sem til eru aftur á bak og áfram ( ásamt því að hafa séð báðar myndirnar) . Mér hefur alltaf þótt einstaklega gaman að fylgjast með spennandi lífi Carrie Bradshaw og vinkvenna hennar í borginni sem aldrei sefur. Hvernig þær standa saman í gegnum súrt og sætt og takast á við gleði og sorgir í ástarmálum og lífinu almennt. Hingað til hafa þessir þættir verið minn leiðarvísir í gegnum það völundarhús sem stefnumótaheimurinn er og þetta ruglandi millibilsástand sem tvítugsaldurinn er. Þú ert ekki lengur unglingur en ekki heldur alveg fullorðin/n. Maður glímir við vandamál með sjálfsmyndina, breytt hlutverk í heiminum og sambönd meðal annars. Sambönd geta verið svo óendanlega flókin. Þau geta verið yndisleg og þau geta valdið manni vonbrigðum og hjartasári. Á þessum árum er eins og allir séu svolítið týndir, bæði karlmenn og konur. Þetta er tíminn sem flestir eru svolítið að reyna að finna sig. Hvar þeir tilheyra og passa inn í þessum heimi. Því hef ég komist að því að eitt af mikilvægustu samböndin sem þú átt á þessum aldri er við sjálfa þig.
Þess vegna er tvítugsaldurinn akkurat tíminn til að leika lausum hala, tíminn til þess að vera svolítið eigingjarn og setja þarfir sínar og drauma framar þörfum annarra. Þetta er tíminn til að uppfylla drauma sína, kynnast sjálfri sér betur og styrkja sjálfa sig. Þetta er mögulega eini tíminn í lífi þínu sem þú munt hafa þann lúxus að geta hugsað fyrst og fremst um sjálfa þig. Svo er líka yndislegt að geta nýtt tíma sínn í að vera með vinkonum sínum og rækta sambandið við þær. Þetta eru manneskjurnar í lífi þínu sem þú veist að munu alltaf standa við bakið á þér. Það er mér óendanlega dýrmætt að geta nýtt tíma minn á nákvæmlega þann hátt sem ég vil, því ég veit að þetta verður ekki svona að eilífu. Með aldrinum færist ábyrgðin yfir mann í auknum mæli og það er margt sem bera þarf á herðum sér og margar fórnir að færa.
Í fyrsta skipti sem ég sá Sex and the city var ég unglingur. Ég hafði aldrei átt kærasta og hafði yfir höfuð ekki mikla reynslu af samskiptum við hitt kynið, svo ég gat illa samsamað mig upplifun persónanna í þáttunum. Með árunum (og nokkrum misvellukkuðum ástarsamböndum) hef ég öðlast meiri og betri skilning.
Ég, rétt eins Carrie er að leita að ást. Hinni stóru ást. Ég vil upplifa augnablikið þar sem lífið eins og þú þekkir það breytist að eilífu. Þegar þú finnur þennan einstakling sem passar þér, sem elskar þig sama hvað. Það virðist þrautinni þyngri í nútímanum, eins og stefnumótaheimurinn er hér á Íslandi. En það er allt í lagi, ég er ekkert að flýta mér. Einhvern daginn, þegar ég verð tilbúin (og þegar ég hitti á réttann aðila) mun ástin finna mig, eða ég hann. Þangað til er ég fullkomnlega hamingjusöm að lifa mínu einhleypa, (tiltölulega) áhyggjulausa lífi, rétt eins og Carrie Bradshaw. Enda er ekki leiðum að líkjast.
Reykjavíkurástir eru hugleiðingar Reykjavíkurdömu um ástina, stefnumótalífið í Reykjavík og allt sem hefur að gera með ástina og sambönd. Rithöfundur bloggsins er mikil áhugamanneskja um ást og allt sem henni við kemur. Hér verða málefni ástarinnar krufin til mergjar. Ég býst við því að það sé ekki mikið eftir að gera nema byrja!