En hamingju er vinna sem aldrei er lokið. Hamingja er eitthvað sem við þurfum að hafa fyrir. Hamingja er eitthvað sem er algjörlega þess virði.
Ég hef tekið eftir því að oft er það sem færir mér mesta hamingju eru litlu hlutirnir: nýtt naglalakk skemmtileg grein á netinu eða góður matur. Möguleikarnir fyrir hamingju eru endalausir bara ef maður hefur augun opin!
Því mun ég, í þessum "dálki",deila áhugaverðum hlutum og því sem er mér efst í huga hverju sinni:
Voilá!
Bloggarinn Cherry Blossom girl er með svo yndislega fallegan og draumkenndan stíl og mig hefur dreymt þennan fallega hárrauða kjól síðan ég sá hann fyrst á blogginu hennar. Nú er bara að byrja að safna.
Ég elska Rebelle Society! Þessi grein er mjög áhugaverð og skemmtileg og endurspeglar nokkurn veginn hvernig mér líður sjálfri.
xoxo
Reykjavíkurdaman
No comments:
Post a Comment