Það er ekki mikið um að vera hérna þessa dagana, þar sem ég er á fullu í prófalestri. Tók mér smá pásu frá lestri í síðustu viku og rakst á þetta yndislega mynband, sem er vafalaust eitt það sætasta sem ég hef séð í langan tíma.
Tan Hong Ming er ástfanginn. Hér spjallar hann um stelpuna sem hann er ástfanginn af , fylgist rosalega vel við svipbrigðum hans þegar hún svo birtist. Algjörlega ómetanlegt!
Svo yndislegt að vera ungur og saklaus.
Það er ómögulegt að brosa ekki yfir þessu. Ég sveif um á bleiku skýi það sem eftir lifði dags eftir að hafa séð þetta.
Hafið það gott,
-Reykjavíkurdaman
No comments:
Post a Comment